Hetjurnar okkar hætta við gerast guðir og gerast maðkar í staðinn er þeir fabúlera um stiklur súpuskálarinnar, hrauna yfir hraunara, troða vampýrum í kynsegin stafrófið og tuða stefnulaust um rómantík.
Ævorman og Hulkleikur missa tímaskynið og tala of lengi um tilfinningalíf Grettis, húðlit Emmu Steins, stór vandamál í litlu Kína, endurkomu aðalsmannaliðsins og endalok...
Hulli og Ævar ræða gleymda Curry fjölskyldu, Ghost Rider teikningar, Star Trek potta, japanska tölvuleiki, blandaðar hnetur og duglega froska.
Strákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum...