Hetjurnar okkar jafna sig á spurningakeppnis-tráma, fara yfir best of lista sem einhver leikstjóri útí bæ gerði og undirbúa sig undir 200 þátta afmæli.
Hulkleikur og Ævorman spjalla um synglýsingar, myrkraprinsa, mömmur á mars, skítaþorp, svarta sjálfselskendur, gluggaveðursbíómyndir, finnskan typpamassa, íslenskar leðurblökur, áru ofurmenna, uppáhalds ósýnilingar og hefndarklám...
Hulkleikur og Ævorman ræða eigin sköpunarverk ofurhetjubækur og fangelsisþætti, óskir sínar hvað gjafir varðar og stærstu kvikmynd ársins, Rogue One.