Hulkleikur og Ævorman taka símafund yfir hafið um mandolínmanninn, falsaðan ofurhetjuhöfund, endurtekinn nýju-jórvíkurflótta, hnefaleikahæfileika útikatta og endalok strákanna.
Hetjurnar hugumprúðu eygja alklæðnað Amazóngyðju, sækja syndaborgina svarthvítu heim, mæna á minnkaðan mauratamningamann og halda hamingjusamir niður Heiftarveginn, er þeir verja heilum þætti í...
Hefnendurnir fara enn og aftur í tiltölulega niðurstöðulaust umræðuferðalag um óumflýjanleika gervigreindarinnar, endurreista undraheima, ekki svo fantastic mr. fantastic og aldur Jasons Voorhees.
Ævorman í borg óttans og Hulkleikur í friðardalnum ræða símleiðis um bit krútthnífsins, rödd leðurblökunnar, harmleik svarthöfða, táningsár úlfsins og spielbergmyndina sem spielberg spielbergaði...