Latest Episodes
Hefnendurnir 18 - Vampýr Áskell vs. Zombie Brown
Fullhugarnir fílelfdu fagna aldarfjórðungs afmæli Burton blökunnar, agnúast um ódauða uppvakninga og reyna rauðeygðir að réttlæta og verja væskilslegu vinnuna sína.
Hefnendurnir 17 - Snöffbolti
Hetjurnar okkar díla við drottinssvik, horfa á nokkrar hermikrákumyndir, minnast fallins B'starðs og reyna að fóta sig í boltaheimum.
Hefnendurnir 16 - Dalur doppelgängeranna
Hulkleikur og Ævor man velta fyrir sér dystópískum útópíum, spá í kúrekageimverubönum og skreppa síðan í heimsókn í dal tvífarakvikmyndanna.
Hefnendurnir 15 - Son of Han
Hulkleikur og Ævor Man fá Ragga 'Rawkeye' Hansson í heimsókn til sín til að ræða stjörnustjórnarkosningar, tímaflakkandi kynlífsbandíta og mauramann í sköpunarkrísu.
Hefnendurnir 14 - Gremja Górilluhvalsins
Ævor Man og Hulkleikur ræða um dularfulla ofurkrafta Kitty Pryde, skoða kosningar með sínum augum og fá Kaiju áhugamanninn Ómar Swarez til að uppfræða...
Hefnendurnir 13 - Bítladróttinssaga
Hetjurnar okkar ræða um nýjasta búning Leðurblökumannsins, minnast skrímslasmiðsins H.R. Giger og spekúlera í kvikmyndum sem aldrei urðu.